Bauganes 3A

Verknúmer : BN035930

442. fundur 2007
Bauganes 3A, leiðrétt stærðarbókun
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 30. apríl síðastliðinn var samþykkt leyfi til að byggja tvöfaldan bílskúr og til að byggja við til norðurs og suðurs á einbýlishúsinu á lóðinni nr. 3A við Bauganes.
Stærðir voru bókaðar: Stækkun 132,8 ferm. og 291,8 rúmm., en áttu að vera stækkun íbúðarhúss (matshluti 01) 84,8 ferm., 259,8 rúmm og bílskúr (matshluti 02) 48 ferm., 159,8 rúmm. Samtals stækkun á lóð 132,8 ferm., 419,6 rúmm.
Gjald var bókað kr. 6.800 + 19.839 en á að vera kr. 6.800 + 28.532.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.