Drápuhlíð 10

Verknúmer : BN035923

442. fundur 2007
Drápuhlíð 10, endunýjun á byggingarleyfi frá 26/4 2006
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi BN033455 frá 26. apríl 2006.
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á rishæð hússins á lóðinni nr. 10 við Drápuhlíð, skv. uppdr. Arko, dags. 28. júlí 2005 síðast breytt 3. mars 2006. Málið var í kynningu frá 22. mars til og með 19. apríl 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda í Drápuhlíð 10 og 12 (á teikn.) fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.