Vogasel 3

Verknúmer : BN035922

443. fundur 2007
Vogasel 3, Endurn. á byggingarleyfi (26141)
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. 26141 dags. 11. desember 2002 þar sem veitt var leyfi til þess að breyta áður einbýlishúsi með því að innrétta íbúð í áður vinnustofu og leyfi til þess að byggja anddyrisviðbyggingu við norðurhlið 1. hæðar hússins á lóð nr. 3 við Vogasel.
Stærð: Viðbygging 2,4 ferm., 6,5 rúmm., milliloft 51,2 ferm.
Gjald kr. 6.800 + 442
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.