Ármúli 2

Verknúmer : BN035902

444. fundur 2007
Ármúli 2, breytingar
Sótt er um leyfi til að koma fyrir rafdreifistöð í hluta vörumóttöku og hækka útbyggingu og stækka svalir ofan á útbyggingu miðað við nýlega samþykktar teikningar sbr. umsókn nr. BN034443 á atvinnuhúsnæðinu á lóðinni nr. 2 við Ármúla.
Stærðir: Stækkun 55,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 3.767
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


442. fundur 2007
Ármúli 2, breytingar
Sótt er um leyfi til að koma fyrir rafdreifistöð í hluta vörumóttöku og hækka útbyggingu og stækka svalir ofan á útbyggingu miðað við nýlega samþykktar teikningar sbr. umsókn nr. BN034443 á atvinnuhúsnæðinu á lóðinni nr. 2 við Ármúla.
Stærðir: Stækkun 55,4 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 3.767
Frestað.
Lagfæra skráningu.