Laugavegur 55

Verknúmer : BN035790

440. fundur 2007
Laugavegur 55, endurnýjun á b.leyfi (bn032444)
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 22. nóvember 2005 þar sem sótt var um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi skábrautar og tröppu á lóð, færa sorpgeymslu út á lóð, dýpka gólf í áður sorpgeymslu í kjallara og nýta það rými sem hluta veitingahúss á lóðinni nr. 55 við Laugaveg.
Jafnframt er sótt um leyfi til þess að sameina matshluta 01, 02 og 03 lóðinni.
Stærð: Stækkun vegna dýpkunar gólfs 16,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 1.142
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.