Baldursgata 29

Verknúmer : BN035659

97. fundur 2007
Baldursgata 29, svalaskýli
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2007 þar sem sótt er um leyfi fyrir svalaskýli á svalir sem fyrir eru á lóðinni nr. 29 við Baldursgötu, samk. teikningum Ellerts M. Jónssonar dags. 20. mars 2007. Grenndarkynning stóð yfir frá 11. maí til 8. júní 2007. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna Baldurgötu nr. 27 og 31 dags. 24., 25. og 27. janúar 2007. og Freyjugötu nr. 10A og 10 dags. 20. og 23. apríl 2007.
Stærð: Svalalokun 10,0 ferm., 24,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


162. fundur 2007
Baldursgata 29, svalaskýli
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. apríl 2007 þar sem sótt er um leyfi fyrir svalaskýli á svalir sem fyrir eru á lóðinni nr. 29 við Baldursgötu, samk. teikningum Ellerts M. Jónssonar dags. 20. mars 2007.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna Baldurgötu nr. 27 og 31 dags. 24., 25. og 27. janúar 2007. og Freyjugötu nr. 10A og 10 dags. 20. og 23. apríl 2007.
Stærðir svalalokunar: 10,0 ferm., 24,8 rúmm.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Baldursgötu 31 og Freyjugötu 10a.

441. fundur 2007
Baldursgata 29, svalaskýli
Sótt er um leyfi fyrir svalaskýli á svalir sem fyrir eru á lóðinni nr. 29 við Baldursgötu.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna Baldurgötu nr. 27 og 31 dags. 24., 25. og 27. janúar 2007. og Freyjugötu nr. 10A og 10 dags. 20. og 23. apríl 2007.
Stærðir svalalokunar: 10,0 ferm., 24,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsstjóra til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta 01-02 dags. 20. mars 2007.


437. fundur 2007
Baldursgata 29, svalaskýli
Sótt er um leyfi fyrir svalaskýli á svalir sem fyrir eru á lóðinni nr. 29 við Baldursgötu.
Meðfylgjandi er samþykki nágranna Baldurgötu 27 og 31 dags. 24, 25 og 27. janúar 2007.
Stærðir 24,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Að þeim uppfylltum verður málið sent skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.