Ægisíða 113

Verknúmer : BN035615

443. fundur 2007
Ægisíða 113, breytingar
Sótt er um leyfi til að stækka kvist út yfir þar sem nú eru svalir, byggja pall og tröppur ofan í garð og koma fyrir hurð út á pall einbýlishússins á lóðinni nr. 113 við Ægisíðu.
Samþykki nágranna áritað á uppdrátt fylgir málinu.
Stækkun 4,2 ferm. og 10 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 860
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


91. fundur 2007
Ægisíða 113, breytingar
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. mars 2007 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist út yfir þar sem nú eru svalir, byggja pall og tröppur ofan í garð og koma fyrir hurð út á pall einbýlishússins á lóðinni nr. 113 við Ægisíðu skv. teikningum GLÁMU-KÍM dags. 21. júní 2007. Samþykki nágranna áritað á uppdrátt.
Stækkun: 4,2 ferm. og 10 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 860
Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


157. fundur 2007
Ægisíða 113, breytingar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. mars 2007 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist út yfir þar sem nú eru svalir, byggja pall og tröppur ofan í garð og koma fyrir hurð út á pall einbýlishússins á lóðinni nr. 113 við Ægisíðu.
Meðfylgjandi:
Teikningar GLÁMA-KÍM dags. 21. júní 2007.

Samþykkt að grenndarkynna fyrirliggjandi byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Sörlaskjóli 18, 20 og 22.

436. fundur 2007
Ægisíða 113, breytingar
Sótt er um leyfi til að stækka kvist út yfir þar sem nú eru svalir, byggja pall og tröppur ofan í garð og koma fyrir hurð út á pall einbýlishússins á lóðinni nr. 113 við Ægisíðu.
Stækkun 4,2 ferm. og 10 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 860
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu, vísað er til uppdrátta A1.01, 02 og 04 dags. 21. júní 2006. Jafnframt er vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.