Kringlan 4-12

Verknúmer : BN035486

433. fundur 2007
Kringlan 4-12, rými 355 - salerni
Sótt er um leyfi til þess að innrétta snyrtingu í einingu 355 þar sem verður hvíldarrými fyrir foreldra með ungabörn á 3. hæð Kringlunnar á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Samantekt vegna brunamála dags. 21. febrúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.