Bergstaðastræti 16-18

Verknúmer : BN035457

433. fundur 2007
Bergstaðastræti 16-18, 16 - endurn. byggl frá 26/9/06
Sótt er um endurnýjun á byggingaleyfi á leyfi til að endurbyggja húsið Hverfisgata 44 að Bergstaðastræti 16. Núverandi bakstigahús verður rifið og nýtt byggt í staðinn. Í húsinu verða þrjár íbúðir. Húsið er úr timbri tvær hæðir og ris á steyptum kjallara. Bréf borgarminjavarðar dagsett 18. ágúst 2006 fylgir erindinu, ásamt ljósmyndum af núverandi útliti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. september 2006 fylgir erindinu.
Stærðir 411,6 ferm., og 1169,8 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 79.546
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.