Hrefnugata 7

Verknúmer : BN035412

433. fundur 2007
Hrefnugata 7, (fsp) hækka þak, kvistir og svalir
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak, setja kvist á allar hliðar þaks og svalir á suðurhlið allra hæða fjölbýlishússins á lóð nr. 7 við Hrefnugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2007 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa enda verði sótt um byggingarleyfi.


153. fundur 2007
Hrefnugata 7, (fsp) hækka þak, kvistir og svalir
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. febrúar 2007. Spurt er hvort leyft verði að hækka þak, setja kvist á allar hliðar þaks og svalir á suðurhlið allra hæða fjölbýlishússins á lóð nr. 7 við Hrefnugötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2007.
Neikvætt eins og erindið liggur fyrir en jákvætt gagnvart hækkun þaks með nánari vísan til skilyrða í umsögn skipulagsfulltrúa. Ekki eru gerðar athugasemdir við svalir.

431. fundur 2007
Hrefnugata 7, (fsp) hækka þak, kvistir og svalir
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak, setja kvist á allar hliðar þaks og svalir á suðurhlið allra hæða fjölbýlishússins á lóð nr. 7 við Hrefnugötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.