Hólavallagata 9

Verknúmer : BN035395

432. fundur 2007
Hólavallagata 9, endurnýjun byggingarleyfis
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 25. janúar 2006 þar sem samþykkt var leyfi til að byggja svalir á 1. hæð suður- og austurhliðar með tröppum niður í garð hússins á lóðinni nr. 9 við Hólavallagötu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.