Skútuvogur 2

Verknúmer : BN035268

152. fundur 2007
Skútuvogur 2, hjólaskýli afdrep
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. janúar 2007. Sótt er um að breyta innra skipulagi annarrar hæðar og bæta við fundaraðstöðu við stigahús og barnahorni í mötuneyti og byggja afdrep fyrir reykingafólk og hjólaskýli í tengslum við atvinnuhús á lóð nr. 2 við Skútuvog, skv. uppdr. Ask arkitekta, dags. 04. apríl 2006 síðast breytt 16. janúar 2007. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2007.
Gjald kr. 6.800
Ekki eru gerðar athugasemdir við hjólaskýli, en ekki er fallist á afdrep á lóðarmörkum með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.

150. fundur 2007
Skútuvogur 2, hjólaskýli afdrep
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23.01.07. Sótt er um að breyta innra skipulagi annarrar hæðar og bæta við fundaraðstöðu við stigahús og barnahorni í mötuneyti og byggja afdrep fyrir reykingafólk og hjólaskýli í tengslum við atvinnuhús á lóð nr. 2 við Skútuvog, skv. uppdr. Ask arkitekta, dags. 04.04.06 síðast breytt 16.01.07.
Gjald kr. 6.800

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

432. fundur 2007
Skútuvogur 2, hjólaskýli afdrep
Sótt er um leyfi til þess að byggja afdrep fyrir reykingafólk og hjólaskýli við matshluta 02 í tengslum við atvinnuhús á lóð nr. 2 við Skútuvog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. febrúar 2007 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2007 fylgja erindinu.
Stærð: Hjólaskýli og afdrep fyrir reykingarmenn (B-rými) samtals 17,6 ferm., xxx rúmm.
Gjald kr. 6.800 + xxx

Synjað.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. febrúar 2007.


428. fundur 2007
Skútuvogur 2, hjólaskýli afdrep
Sótt er um að breyta innra skipulagi annarrar hæðar og bæta við fundaraðstöðu við stigahús og barnahorni í mötuneyti og byggja afdrep fyrir reykingafólk og hjólaskýli í tengslum við atvinnuhús á lóð nr. 2 við Skútuvog.
Gjald kr. 6.800

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.