Klausturstígur 1-11

Verknúmer : BN035221

427. fundur 2007
Klausturstígur 1-11, Sorpskýli, stígar og skilti
Sótt er um leyfi til þess að breyta staðsetningu á þjónustuskiltum, breyta staðsetningu og fjölda sorpstöðva til flokkunar og samþykki fyrir breytingu á stígum 1. áfanga og leyfi til þess að breyta stígum 2. áfanga stúdentagarða Byggingarfélags námsmanna á lóð nr. 1-11 við Klausturstíg og 1-13 við Kapellustíg.
Bréf hönnuðar dags. 2. janúar 2007 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.800
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.