Bjarmaland 17-23

Verknúmer : BN035209

429. fundur 2007
Bjarmaland 17-23, 23 - viðbygging o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja við, breyta þaki og færa til upprunalegs horfs og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsinu nr. 23 á lóðinni nr. 17-23 við Bjarmaland.
Málinu fylgir samþykki meðlóðarhafa á uppdrætti dags. 4. janúar 2006.
Stækkun: 60,3 ferm. 192,1 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 13.063
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


426. fundur 2007
Bjarmaland 17-23, 23 - viðbygging o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja við, að breyta þaki og færa til upprunalegs horfs og til að breyta innra skipulagi í einbýlishúsinu nr. 23 á lóðinni nr. 17-23 við Bjarmaland.
Málinu fylgir samþykki meðlóðarhafa á uppdrætti dags. 4. janúar 2006.
Stækkun: 60,3 ferm. 192,05 rúmm.
Gjald kr. 6.800 + 11.715
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.