Bíldshöfði 14

Verknúmer : BN035203

441. fundur 2007
Bíldshöfði 14, skipta rýminu að hluta fl.
Sótt er um leyfi til að skipta í tvo eignarhluta með því að byggja milligólf og koma fyrir gönguhurð og iðnaðarhurð á suðurhluta efri hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 14 við Bíldshöfða. Einnig er sótt um að koma fyrir 3 bílastæðum sunnan við efri hæð sem snýr að Axarhöfða.
Umsögn skrifstofustjóra Framkvæmdasviðs dags. 18. janúar 2007 fylgir erindinu. Málinu fylgir einnig samþykki meðeigenda í Mhl. I í Bíldshöfða 14 áritað á uppdrátt og dags. 18. apríl 2007.
Stærð: Stækkun 121 ferm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


426. fundur 2007
Bíldshöfði 14, skipta rýminu að hluta fl.
Sótt er um leyfi til að byggja milligólf og koma fyrir gönguhurð og iðnaðarhurð á suðurhluta efri hæðar atvinnuhússins á lóðinni nr. 14 við Bíldshöfða.
Stærð: Stækkun xx ferm.
Gjald kr. 6.800
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skrifstofustjóra Framkvæmdasviðs vegna lóðarsamnings.