Fiskislóð 15-21

Verknúmer : BN034815

415. fundur 2006
Fiskislóð 15-21, mæliblað
Lagt fram mæliblað Faxaflóahafna, dags. september 2006, ásamt bréf dags. 2. október 2006, vegna lóðarinnar nr. 15-21 við Fiskislóð og óskað eftir skráningu lóðarinnar í samræmi við mælibað.
Fiskisklóð 15-21, stærð lóðar 22.200 ferm.
Kvöð er á lóð um legu holræsa og veitulagna og nauðsynlega umferð og jarðvinnu vegna viðhalds lagna.
Bílastæði á lóð skulu vera í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Almenn kvöð er á lóðarhöfum við Fiskislóð að þeir hafi samráð við lóðarhafa aðliggjandi lóða um frágang lóðamarka.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.