Kirkjuteigur 24

Verknúmer : BN034765

414. fundur 2006
Kirkjuteigur 24, fjarl. færanl. kennslust.
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 30. maí 2006 var samþykkt að setja upp færanlega kennslustofu nr. K-82 B við A-álmu Langholtsskóla á lóð nr. 23 við Holtaveg, á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 27. júní 2006 var samþykkt að að setja upp færanlegar kennslustofur nr. K-79 B, K-80 B og K-81 B ásamt miðrými tengt með tengigangi nr. T-48 B við Sæmundarsel á lóð nr. 168 við Gvendargeisla og á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 15. ágúst 2006 var samþykkt að setja upp þrjár færanlegar kennslustofur þar sem einnig eru settir upp tengigangar nr. T-49 B og T-50 A við Ingunnarskóla á lóð nr. 1 við Maríubaug. Allar þessar færanlegur kennslustofur og tengigangar verða fjarlægðir frá Laugarnesskóla á lóð nr. 24 við Kirkjuteig.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.