Mururimi 13

Verknúmer : BN034759

417. fundur 2006
Mururimi 13, gluggabreyting o.fl.
Sótt er um leyfi til breytinga á gluggum, þ.e stækkun á gluggum stofu og borðstofu ásamt breytingum á gluggum á 2. hæð í húsinu á lóðinni nr. 13 við Mururima. Hætt er við samþykkta viðbyggingu undir svölum sem samþykkt var 22. ágúst 2006, en byggt er ofan á svalir. Jafnframt er Samþykkt frá 22. ágúst 2006 felld úr gildi.
Stækkun: 6,4 ferm., 23 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.403
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


415. fundur 2006
Mururimi 13, gluggabreyting o.fl.
Sótt er leyfi til breytinga á gluggum, þ.e stækkun á gluggum stofu og borðstofu ásamt breytingum á gluggum á 2. hæð í húsinu Mururimi 13. Hætt er við samþykkta viðbyggingu undir svölum sem samþykkt var 22. ágúst 2006, en byggt er ofan á svalir. Eldri umsókn verður felld úr gildi.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.