Reykjavíkurvegur 25A

Verknúmer : BN034527

436. fundur 2007
Reykjavíkurvegur 25A, viðbygging
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja við stofu og bílskúr einbýlishússins á lóðinni nr. 25A við Reykjavíkurveg.
Stærð: Stækkun íbúðar 13,4 ferm., 148,7 rúmm. Stækkun bílgeymslu 14,2 ferm., 43,1 rúmm.
Samtals 27,6 ferm., 191,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


69. fundur 2006
Reykjavíkurvegur 25A, viðbygging
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. ágúst 2006. Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja við stofu og bílskúr einbýlishússins á lóðinni nr. 25A við Reykjavíkurveg, skv. uppdr. Kristjáns Eggertssonar og Magnúsar Jenssonar, dags. 4. ágúst 2006. Kynning stóð yfir frá 15. september 2006 til og með 13. október 2006. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: Stækkun xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xx
Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


411. fundur 2006
Reykjavíkurvegur 25A, viðbygging
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja við stofu og bílskúr einbýlishússins á lóðinni nr. 25A við Reykjavíkurveg.
Stærð: Stækkun íbúðar 13,4 ferm., 148,7 rúmm. Stækkun bílgeymslu 14,2 ferm., 43,1 rúmm.
Samtals 27,6 ferm., 191,8 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Skipulagsferli ólokið.


130. fundur 2006
Reykjavíkurvegur 25A, viðbygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22.08.06. Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja við stofu og bílskúr einbýlishússins á lóðinni nr. 25A við Reykjavíkurveg, skv. uppdr. Kristjáns Eggertssonar og Magnúsar Jenssonar, dags. 04.08.06.
Stærð: Stækkun xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xx

Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Reykjavíkurvegi 23 og 25 ásamt Hörpugötu 9, 11, 13 og 13b, þegar samþykki lóðarhafa að Reykjavíkurvegi 25 liggur fyrir.

408. fundur 2006
Reykjavíkurvegur 25A, viðbygging
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og byggja við stofu og bílskúr einbýlishússins á lóðinni nr. 25A við Reykjavíkurveg.
Stærð: Stækkun xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 6.100 + xx

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.