Brautarholt 6

Verknúmer : BN034470

66. fundur 2006
Brautarholt 6, reisa nýjar svalir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 15. ágúst 2006. Sótt er um leyfi til að gera nýjar svalir á 3. hæð suðurhliðar á húsinu á lóðinni nr. 6 við Brautarholt. Kynning stóð yfir frá 24. ágúst til og með 21. september. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


128. fundur 2006
Brautarholt 6, reisa nýjar svalir
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 15. ágúst 2006. Sótt er um leyfi til að gera nýjar svalir á 3. hæð suðurhliðar á húsinu á lóðinni nr. 6 við Brautarholt.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 8.

407. fundur 2006
Brautarholt 6, reisa nýjar svalir
Sótt er um leyfi til að gera nýjar svalir á 3. hæð suðurhliðar á húsinu á lóðinni nr. 6 við Brautarholt.
Gjald kr. 6.100
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.