Bergstaðastræti 32B

Verknúmer : BN034441

407. fundur 2006
Bergstaðastræti 32B, (fsp) ofanábygging
Spurt er um leyfi til að byggja ofan á húsið 3. hæðina og gera ráð fyrir garðskála á þaki nýrri hluta hússins Bergstaðarstræti 32b. Skissa af fyrirhuguðum breytingum fylgir með.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. ágúst 2006 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2006 fylgja erindinu.
Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2006.


127. fundur 2006
Bergstaðastræti 32B, (fsp) ofanábygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 01.08.06. Spurt er um leyfi til að byggja þriðju hæðina ofan á húsið og gera ráð fyrir garðskála á þaki nýrri hluta hússins Bergstaðastræti 32b. Skissa af fyrirhuguðum breytingum fylgir með. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2006.
Neikvætt vegna byggingu þriðju hæðar með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.

126. fundur 2006
Bergstaðastræti 32B, (fsp) ofanábygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 01.08.06. Spurt er um leyfi til að byggja þriðju hæðina ofan á húsið og gera ráð fyrir garðskála á þaki nýrri hluta hússins Bergstaðastræti 32b. Skissa af fyrirhuguðum breytingum fylgir með.
Frestað. Vísað til umsagnar hverfisarkitekts.

406. fundur 2006
Bergstaðastræti 32B, (fsp) ofanábygging
Spurt er um leyfi til að byggja ofan á húsið 3. hæðina og gera ráð fyrir garðskála á þaki nýrri hluta hússins Bergstaðarstræti 32b. Skissa af fyrirhuguðum breytingum fylgir með.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.