Þórsgata 27

Verknúmer : BN034387

64. fundur 2006
Þórsgata 27, svalir og viðbygging
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júní 2006. Sótt er um að byggja stigahús og snyrtingu við húsið úr steinsteypu og gera svalir úr timbri á austurhlið 1. hæðar, einnig er sótt um leyfi fyrir nýju bílastæði á lóðinni nr. 27 við Þórsgötu. Skv. uppdr. Páls V. Bjarnasonar, dags. 5. júlí 2006. Kynning stóð yfir frá 2. ágúst 2006 til og með 30. ágúst 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


125. fundur 2006
Þórsgata 27, svalir og viðbygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25.06.06. Sótt er um að byggja stigahús og snyrtingu við húsið úr steinsteypu og gera svalir úr timbri á austurhlið 1. hæðar, einnig er sótt um leyfi fyrir nýju bílastæði á lóðinni nr. 27 við Þórsgötu. Skv. uppdr. Páls V. Bjarnasonar, dags. 05.07.06.
Stækkun: 39,6 ferm., og 85,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.209
Samþykkt að grenndarkynna fyrirliggjandi byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Þórsgötu 24-26, 25 og 29 ásamt Lokastíg 24A, 26 og 28A.

405. fundur 2006
Þórsgata 27, svalir og viðbygging
Sótt er um að byggja stigahús og snyrtingu við húsið úr steinsteypu og gera svalir úr timbri á austurhlið 1. hæðar, einnig er sótt um leyfi fyrir nýju bílastæði á lóðinni nr. 27 við Þórsgötu.
Stækkun: 39,6 ferm., og 85,4 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.209
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.