Fossaleynir 19-23

Verknúmer : BN034363

404. fundur 2006
Fossaleynir 19-23, viðbygging , breyting
Sótt er um leyfi til þess að breyta nýsamþykktum öðrum áfanga sem er einnar hæða stálgrindarviðbygging á lóð nr. 19-23 við Fossaleynir.
Umsögn brunahönnuðar dags. 10. júlí 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Var samþykkt 195,8 ferm., verður 278,7 ferm., var 1230,6 rúmm., verður 2197,5 rúmm., eða stækkun 82,9 ferm., 966,9 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 58.981
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.