Keilufell 49

Verknúmer : BN034329

405. fundur 2006
Keilufell 49, sólstofa
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri breytingu bílskýlis í bílskúr og leyfi til þess að byggja sólstofu við suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 49 við Keilufell.
Stærð: Áður gerður bílskúr 19,8 ferm., 48,6 rúmm. Sólstofa 13,9 ferm., 38,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.319
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


403. fundur 2006
Keilufell 49, sólstofa
Sótt er um leyfi til þess að byggja sólstofu við suðurhlið einbýlishússins á lóð nr. 49 við Keilufell.
Stærð: Sólstofa 13,9 ferm., 38,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 2.355
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.