Ægisíða 103

Verknúmer : BN034284

73. fundur 2006
Ægisíða 103, stækkun húss
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. september 2006. Sótt er um leyfi til að byggja ofan á svalir og breyta kvisti á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 103 við Ægisíðu. Kynning stóð yfir frá 11. október til og með 8. nóvember 2006. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: Stækkun 10,9 ferm., 29,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.806
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


135. fundur 2006
Ægisíða 103, stækkun húss
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. september 2006. Sótt er um leyfi til að byggja ofan á svalir og breyta kvisti á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 103 við Ægisíðu.
Stærð: Stækkun 10,9 ferm., 29,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.806
Samþykkt að grenndarkynna fyrirliggjandi byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Ægissíðu 101 og 105, Sörlaskjóli 6 og 8 og Faxaskjóli 4.

413. fundur 2006
Ægisíða 103, stækkun húss
Sótt er um leyfi til að byggja ofan á svalir og breyta kvisti á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 103 við Ægisíðu.
Stærð: Stækkun 10,9 ferm., 29,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.806
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 001 og 002 dags. 19. september 2006.


402. fundur 2006
Ægisíða 103, stækkun húss
Sótt er um leyfi til að byggja ofaná svalir og breyta kvisti á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 103 við Ægisíðu.
Stærð: Stækkun 10,9 ferm., 29,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 1.806
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.