Ferjuvað 1-5

Verknúmer : BN034243

404. fundur 2006
Ferjuvað 1-5, fjölbýlish. m. 30 íb.
Sótt er um leyfi til þess að byggja fjögurra hæða fjölbýlishús með tveimur stigahúsum ásamt geymslu og bílgeymslukjallara fyrir 18 bíla allt úr steinsteypu og forsteyptum einingum á lóð nr. 1-5 við Ferjuvað.
Jafnframt er lagt til að húsið verði framvegis nr. 1-3 við Ferjuvað.
Stærð: Íbúðir geymslukjallari 574 ferm., 1. hæð 912,6 ferm., 2. hæð 871,4 ferm., 3. hæð 871,4 ferm., 4. hæð 664,2 ferm., bílgeymsla 559,3 ferm., samtals 4459,9 ferm., 13193,6 rúmm. Svalagangar (B-rými) samtals 216,9 ferm., 609,5 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 841.989
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skila skal vottun eininga eigi síðar en við úttekt á botnplötu.


57. fundur 2006
Ferjuvað 1-5, fjölbýlish. m. 30 íb.
Sótt er um leyfi til þess að byggja fjögurra hæða fjölbýlishús með tveimur stigahúsum ásamt geymslu og bílgeymslukjallara fyrir 18 bíla allt úr steisteypu og forsteyptum einingum á lóð nr. 1-5 við Ferjuvað.
Jafnframt er lagt til að húsið verði framvegis nr. 1-3 við Ferjuvað.
Stærð: Íbúðir geymslukjallari 573,5 ferm., 1. hæð 917,6 ferm., 2. hæð 869,8 ferm., 3. hæð 869,8 ferm., 4. hæð 662,6 ferm., bílgeymsla 560 ferm., samtals 4453,3 ferm., 13171,7 rúmm. Svalagangar (B-rými) samtals 239,4 ferm., 670,3 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 844.362
Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar teikningar hafa verið lagfærðar í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.