Ægisíða 58

Verknúmer : BN034198

402. fundur 2006
Ægisíða 58, nýr bílskúr + br. úti
Sótt er um leyfi til þess að byggja bílskúr, breyta glugga á 2. hæð í svalahurð og breyta þakefni hússins á lóðinni nr. 58 við Ægisíðu.
Jafnframt er erindi nr. 34065 dregið til baka.
Bílskúr stærð: 61,5 ferm., 190,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.633
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.


400. fundur 2006
Ægisíða 58, nýr bílskúr + br. úti
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr, að breyta glugga á 2. hæð í svalahurð og breyta þakefni hússins á lóðinni nr. 58 við Ægisíðu úr bárujárni í kopar.
Jafnframt er erindi nr. 34065 dregið til baka.
Bílskúr stærð: 61,5 ferm., 190,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 11.633
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.