Hæðargarður 6

Verknúmer : BN034099

398. fundur 2006
Hæðargarður 6, anddyri og hækka þak
Sótt er um leyfi til þess að hækka þak með kvist á hvorri þakhlið, byggja léttbyggða anddyrisviðbyggingu við norðurhlið 1. hæðar, svalir við suðurhlið 2. hæðar og litlar svalir við suðurhlið 3. hæðar íbúðarhússins á lóð nr. 6 við Hæðargarð.
Samþykki meðeigenda að húsi ódags. fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun samtals 60,5 ferm., 88,6 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 5.405
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.