Ránargata 26

Verknúmer : BN034000

400. fundur 2006
Ránargata 26, (fsp) lengja þak - stækka hús
Spurt er hvort leyft yrði að lengja þakið og stækka húsið á lóðinni nr. 26 við Ránargötu. Útskrift úr gerðarbók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2006 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa frá 14 des. 2005 fylgja erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa enda verði sótt um byggingarleyfi.


120. fundur 2006
Ránargata 26, (fsp) lengja þak - stækka hús
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23.05.06. Spurt er hvort leyft yrði að lengja þakið og stækka húsið á lóðinni nr. 26 við Ránargötu. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa vegna eldri fyrirspurnar dags. 14. desember 2005.
Ekki er gerð athugasemd við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst og þegar fyrir liggur samþykki lóðarhafa að Ránargötu 24 og upplýsingar um breytingar á skuggavarpi.

396. fundur 2006
Ránargata 26, (fsp) lengja þak - stækka hús
Spurt er hvort leyft yrði að lengja þakið og stækka húsið á lóðinni nr. 26 við Ránargötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.