Grasarimi 6-8

Verknúmer : BN033858

393. fundur 2006
Grasarimi 6-8, leiðrétting á bókun frá 1. nóvember 2005
Á afgreiðslufundi byggingarfultlrúa þann 1. nóvember 2005 var lögð fram og samþykkt umsókn Jóns K. Sigurðssonar og Þrastar Sigsteinssonar þar sem sótt var um leyfi til að byggja ofan á eldhús við langhliðar hússins nr. 6 á lóðinni nr. 6-8 við Grasarima.
Þá láðist að bóka að einnig var sótt um það sama fyrir hús nr. 8 við Grasarima.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.