Vatnsstígur 3

Verknúmer : BN033697

390. fundur 2006
Vatnsstígur 3, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum innan húss og utan á fasteign nr. 3 við Vatnsstíg á lóð nr. 31 við Laugaveg.
Málinu fylgir greinargerð frá T. R. ráðgjöf þar sem nánar er tilgreint hvaða breytingar er um að ræða, viðurkenning Brunamálastofnunar á klæðningu efstu hæðar, svo og vottun dags. 18. júlí 2005 á frágangi þaks og þaksvala.
Ennfremur fylgir málinu viljayfirlýsing undirrituð af Stefaníu Sverrisdóttur og Tómasi Karli Aðalsteinssyni um að ekki verði sett upp skilrúm milli eignarhluta á svölum efstu hæðar dags. 28. mars 2006.
Stærð: Stækkun 7,7 ferm., og 0,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 43
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.