Hlíðarendi 2-6

Verknúmer : BN033652

389. fundur 2006
Hlíðarendi 2-6, br. á stúku
Sótt er um leyfi til þess að stækka áhorfendastúku á 3. hæð og setja stiga frá 2. hæð að stúku íþróttahúss Vals á lóð nr. 2-6 við Hlíðarenda.
Bréf brunahönnuðar dags. 21. mars 2006 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 130,1 ferm., 201,7 rúmm.
Gjald kr. 6.100 + 12.304
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

Sveinbjörn Steingrímsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.