Grettisgata 74

Verknúmer : BN033628

389. fundur 2006
Grettisgata 74, reyndarteikning
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 74 við Grettisgötu.
Málinu fylgir ljósrit af afsali dags. 31. ágúst 1956 fyrir ósamþykktri kjallaraíbúð í húsinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Afmörkun ósamþykktrar kjallaraíbúðar er gerð með vísan til 15. gr. reglugerðar nr. 910/2000.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.