Nýlendugata 32

Verknúmer : BN033522

388. fundur 2006
Nýlendugata 32, (fsp) vinnust. tengd kj.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja steinsteyptan bílskúr við vesturhlið kjallara einbýlishússins og nota sem vinnustofu með aðgengi frá kjallara íbúðarhússins á lóð nr. 32 við Nýlendugötu.
Frestað.
Málinu hefur verið vísað til deiliskipulagsvinnu á Nýlendugötureit. Ekki er ljóst hvenær þeirri vinnu lýkur.


109. fundur 2006
Nýlendugata 32, (fsp) vinnust. tengd kj.
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 7. mars 2006. Spurt er hvort leyft yrði að byggja steinsteyptan bílskúr við vesturhlið kjallara einbýlishússins og nota sem vinnustofu með aðgengi frá kjallara íbúðarhússins á lóð nr. 32 við Nýlendugötu, skv. uppdr. PK - Arkitekta, dags. 14. febrúar 2006.
Frestað. Fyrirspurninni er vísað til skoðunar í deiliskipulagsvinnu Nýlendureits.

386. fundur 2006
Nýlendugata 32, (fsp) vinnust. tengd kj.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja steinsteyptan bílskúr við vesturhlið kjallara einbýlishússins og nota sem vinnustofu með aðgengi frá kjallara íbúðarhússins á lóð nr. 32 við Nýlendugötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.