Klapparstígur 35A

Verknúmer : BN033491

385. fundur 2006
Klapparstígur 35A, Leiðrétting v/bílastæðagjalda BN031156
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 28. júní 2005 var samþykkt umsókn Gerpis þar sem sótt var um leyfi til þess að byggja við og breyta fyrirkomulagi á fyrstu hæð hótelsins á lóðinni nr. 35A við Klapparstíg.
Vegna samþykktarinnar var bókað að greiða þyrfti fyrir 1,36 bílastæði í flokki II kr. 298.485.
Nú er lagður fram kaupsamningur, dags. 3. febrúar 1997, á milli borgarsjóðs og Gerpis þar sem fram kemur að ekki þurfi að koma til greiðslu vegna umframbílastæða á lóðinni.
Vegna ofanskráðs kaupsamnings eru bílastæðagjöld vegna samþykkta nr. BNO31156 felld niður.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.