Gullengi 2-6

Verknúmer : BN033345

382. fundur 2006
Gullengi 2-6, takmarkað byggingarleyfi
Ofanritaður sækir um takmarkað byggingarleyfi fyrir greftri, fyllingu og aðstöðugerð vegna húss nr. 6 á lóðinni nr. 2-6 við Gullengi.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi.
Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.