Stangarholt 32

Verknúmer : BN033286

383. fundur 2006
Stangarholt 32, (fsp) bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja tvöfaldan bílskúr á lóðinni nr. 32 við Stangarholt.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. febrúar 2006 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem grenndarkynnt verður. Sjá útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa.


104. fundur 2006
Stangarholt 32, (fsp) bílskúr
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 07.02.06. Spurt er hvort leyft yrði að byggja tvöfaldan bílskúr á lóðinni nr. 32 við Stangarholt.
Ekki er gerð athugasemd við erindið, enda verði stærð byggingar í samræmi við nýlegar samþykktar bílgeymslur í hverfinu. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst.

382. fundur 2006
Stangarholt 32, (fsp) bílskúr
Spurt er hvort leyft yrði að byggja tvöfaldan bílskúr á lóðinni nr. 32 við Stangarholt.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.