Sogavegur 69

Verknúmer : BN033246

381. fundur 2006
Sogavegur 69, endurnýjað byggingarleyfi
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi nr. 23771 frá 16. október 2001 þar sem sótt var um "leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í austurhluta neðri hæðar í matshluta 01 á lóðinni nr. 69 við Sogaveg.
Jafnframt verði gerðir tveir nýjir gluggar á neðri hluta austurhliðar og nýjar útitröppur norðan við matshluta 02. Ennfremur er sótt um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem m.a. fela í sér breytta innkeyrslu og breytt skipulag á lóð og lítilsháttar breytt fyrirkomulag á gluggum á norðurhlið."
Umsögn gatnamálastjóra dags. 8. október 2001 fylgdi erindi 23771.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.