Óðinsgata 9

Verknúmer : BN033221

380. fundur 2006
Óðinsgata 9, breyta aðalinngangi í húsið
Sótt er um leyfi að breyta aðalinngangi á Óðinsgötu 9.
Inngangur færist frá gangstétt inn í portið, forstofu er breytt, m.a tröppur í lagnakjallara fjarlægðar og komið fyrir þjónustulúgu í kjallara frá götu.
Stærðir: 1.18 ferm, 8,8 rúmm
Gjald kr. 6.100 + 536
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.