Giljasel 4

Verknúmer : BN033214

383. fundur 2006
Giljasel 4, (fsp) bílskýli
Spurt er hvort leyft yrði að reisa bílskýli við hlið bílgeymslu á neðri hæð einbýlishússins á lóð nr. 4 við Giljasel.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. febrúar 2006 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Enda láti fyrirspyrjandi vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem síðan verður grenndarkynnt.


104. fundur 2006
Giljasel 4, (fsp) bílskýli
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24.01.06. Spurt er hvort leyft yrði að reisa bílskýli við hlið bílgeymslu á neðri hæð einbýlishússins á lóð nr. 4 við Giljasel.
Ekki er gerð athugasemd við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, sem síðar verður grenndarkynnt.

380. fundur 2006
Giljasel 4, (fsp) bílskýli
Spurt er hvort leyft yrði að reisa bílskýli við hlið bílgeymslu á neðri hæð einbýlishússins á lóð nr. 4 við Giljasel.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.