Lambasel 40

Verknúmer : BN033096

378. fundur 2006
Lambasel 40, br. á sneiðm.
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður samþykktum límtrésbita í stálbita, fella út milliloft í herbergjum og leiðrétta hæðir á sneiðmyndum til samræmis við sérteikningar nýsamþykkts einbýlishúss á lóð nr. 40 við Lambasel.
Bréf hönnuðar dags. 21. desember 2005 fylgir erindinu.
Gjald kr. 6.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.