Réttarháls 2

Verknúmer : BN033021

376. fundur 2005
Réttarháls 2, stækkun rýmis 1 hæð, útihurð
Sótt er um leyfi til þess að byggja einlyfta steinsteypta viðbyggingu við austurgafl 1. hæðar ( stækka rými 0102) og setja nýja útihurð á austurgafl 2. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 2 við Réttarháls.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 5. desember 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Viðbygginga 75,7 ferm., 324,1 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 18.474
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.