Köllunarklettsvegur 8

Verknúmer : BN033015

376. fundur 2005
Köllunarklettsvegur 8, breytingar
Sótt er um leyfi til þess að breyta vindfangi, stækka anddyri, setja flóttastiga á norðurgafl, fækka gluggum á austurhlið og setja upp skilti við innakstur á lóð nr. 8 við Köllunarklettsveg.
Umsögn brunahönnuðar dags. 15. nóvember 2005 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 6,9 ferm., 83,2 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 4.742
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.