Eskihlíð 10

Verknúmer : BN032937

377. fundur 2005
Eskihlíð 10, breyta verslun í íbúð
Sótt er um leyfi til þess að breyta verslunarhúsnæði á jarðhæð (rými 0003) í íbúð í húsinu nr. 10 á lóðinni nr. 10-10A við Eskihlíð. Samþykki meðeigenda dags. 7. nóvember 2005 fylgir erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. desember 2005 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


376. fundur 2005
Eskihlíð 10, breyta verslun í íbúð
Sótt er um leyfi til þess að breyta tveimur gluggum á vesturhlið jarðhæðar húss og breyta verslunarhúsnæði á jarðhæð (rými 0003) í íbúð í húsinu nr. 10 á lóðinni nr. 10-10A við Eskihlíð.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.


98. fundur 2005
Eskihlíð 10, breyta verslun í íbúð
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. desember 2005. Sótt er um leyfi til þess að breyta verslunarhúsnæði á jarðhæð (rými 0003) í íbúð í húsinu nr. 10 á lóðinni nr. 10-10A við Eskihlíð, skv. uppdr. Tækniþjónustunnar sf., dags. október 2000, síðast breytt 19. september 2005.
Gjald kr. 5.700
Ekki er gerð athugasemd við erindið.

374. fundur 2005
Eskihlíð 10, breyta verslun í íbúð
Sótt er um leyfi til þess að breyta verslunarhúsnæði á jarðhæð (rými 0003) í íbúð í húsinu nr. 10 á lóðinni nr. 10-10A við Eskihlíð.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.