Réttarháls 2

Verknúmer : BN032932

373. fundur 2005
Réttarháls 2, lóðamarkabreyting
Lögð fram tillaga Framkvæmdasviðs, landupplýsingardeildar, dags. 21. nóvember 2005, að breytingu á lóðamörkum lóðarinnar nr. 2 við Réttarháls.
Lóðin er 13234 ferm., sbr. lóðarsamning dags. 11. desember 1985.
Bætt við lóðina úr óútvísuðu landi (tveir skikar) 20 ferm.
Lóðin verður 13254 ferm.
Sjá samþykkt skipulagsráðs 31. ágúst 2005.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Lóðamarkabreyting tekur gildi þegar þinglýst hefur verið yfirlýsingu um breytt lóðarmörk.