Lindargata 27

Verknúmer : BN032911

373. fundur 2005
Lindargata 27, stækka endaíb., br. gl. ofl.
Sótt er um leyfi til þess að breyta staðsetningu og stækka sorpgeymslu á 1. hæð, stækka endaíbúðir með styttingu svalaganga, setja upp skerma við svalaganga, breyta lítillega salarhæðium og breyta gluggum norðurhliðar fjölbýlishússins á lóð nr. 27 við Lindargötu.
Stærð: Fjölbýlishús var samtals 2603,5 ferm. verður 2734,4 ferm., var 7689 rúmm. verður 7956 rúmm.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.