Fjárborg 19

Verknúmer : BN032884

372. fundur 2005
Fjárborg 19, leiðrétting á bókun
Í bókun með erindi nr. BN032714, sem samþykkt var á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 18. okt. 2005 og staðfest í borgarstjórn þann 20. okt. 2005, var sótt um leyfi til að "byggja hesthús fyrir 24 hesta ásamt setustofu yfir hlöðu næst götu allt úr steinsteypu klætt með bárujárni á lóð nr. 19 við Fjárborg." Hið rétta er að efri hluti veggja er úr timbri, nema veggur milli hlöðu og hesthúss, sem er steinsteyptur.

Þetta leiðréttist hér með.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.