Ármúli 26

Verknúmer : BN032883

375. fundur 2005
Ármúli 26, br. inni, gl. og skilti
Sótt er um leyfi til þess að fella niður glugga á suðvesturhlið, fella niður skyggni og setja upp skilti á norðausturhlið, breyta innréttingum á 1. og 2. hæð, á 2. hæð eru m.a. snyrtingar færðar þangað sem áður var flóttaleið niður á 1. hæð og ný flóttaleið gerð möguleg af palli yfir á aðlægt þak frá atvinnuhúsinu á lóð nr. 26 við Ármúla.
Samþykki eiganda Ármúla 24 og bréf hönnuðar dags. 25. nóvember 2005 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


373. fundur 2005
Ármúli 26, br. inni, gl. og skilti
Sótt er um leyfi til þess að fella niður glugga á suðvesturhlið, fella niður skyggni og setja upp skilti á norðausturhlið, breyta innréttingum á 1. og 2. hæð, á 2. hæð eru m.a. snyrtingar færðar þangað sem áður var flóttaleið niður á 1. hæð og ný flóttaleið gerð möguleg af palli yfir á aðlægt þak frá atvinnuhúsinu á lóð nr. 26 við Ármúla.
Samþykki eiganda Ármúla 24 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.