Laugavegur 7

Verknúmer : BN032775

36. fundur 2005
Laugavegur 7,
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 20. október 2005 og bréf Lögmanna f.h., Önnu Ólafsdóttur dags. 4. nóvember 2005. Einnig lagt fram minnisblað lögfræði og stjórnsýslu, dags. 18. nóvember 2005.
Tillaga byggingarfulltrúa um að vísa rannsókn málsins til meðferðar lögreglu samþykkt með vísan til minnisblaðs byggingarfulltrúa og lögfræði- og stjórnsýslu dags. 18. nóvember 2005. Ráðið beinir því jafnframt til lögreglu að láta einnig fara fram rannsókn á því hvort framkvæmdir hafi verið stöðvaðar í samræmi við ákvörðun ráðsins á fundi sínum þann 26. október s.l.

35. fundur 2005
Laugavegur 7,
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 20. október 2005 og bréf Lögmanna f.h., Önnu Ólafsdóttur dags. 4. nóvember 2005.
Frestað.

33. fundur 2005
Laugavegur 7,
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 20. október 2005.

Anna Kristinsdóttir vék af fundi kl. 10:57
Helga Bragadóttir vék af fundi kl. 11:09

Frestað á milli funda.
Ákvörðun byggingarfulltrúa um stöðvun framkvæmda staðfest.