Skaftahlíð 11

Verknúmer : BN031389

342. fundur 2005
Skaftahlíð 11, Leiðrétting - stærðir
Á fundi skipulagsráðs 6. apríl 2005 var samþykkt áður gerð skipting á geymslu í kjallara, leyfi til þess að endurbyggja forrými við aðalinngang við vesturhlið með nýjum svölum fyrir 2. hæð ofaná, breyta gluggum í stigahúsi á norðurhlið, stækka og breyta kvistum þakhæðar, setja svalir á suður- og norðurhlið þakhæðar og breyta innra skipulagi íbúðar þakhæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 11 við Skaftahlíð.
Erindið var grenndarkynnt frá 23. febrúar til 23. mars 2005. Athugasemdir bárust.
Í fundargerð vantaði stærðir vegna stækkunar þakhæðar.
Stærð: Stækkun þakhæðar (3. hæð) 5,6 ferm., 48,3 rúmm.
Gjald kr. 5.700 + 5.700 + 2.753
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.